Hófí crazyfly

Þið eruð kúl

03.12.2007 22:25:59 / hofi

lol

Í morgun var ég að keyra barninu mínu í skólann og þegar hún var að ganga út úr bílum þá sagði ég.....JÁ BÆ SJÁUMST Á MORGUN....lol lol hvað var ég að hugsa þarna. Dóttir mín stoppaði og horfði á mig og sagði .. ha mamma...vá ég er orðin svo vön að segja ..sjáumst á morgun hehe síðan gat ég ekki hætt að hlæja alla leiðinna í vinnuna. Það hefði verið fyndið að sjá mig, ein í bílnum í hláturskasti :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 21:26:19 / hofi

Ég vildi bara láta vita að ég er á lífi..............búið að vera nóg að gera og alltaf jafn gaman að vera til. Alveg frábært að vera búin að fá stóru sys heim. Ég fór einmitt til hennar í dag og fékk dekur, hún lakkaði nýju neglurnar mínar og svo líka tásuneglurnar svo nú er maður orðin ein rosa gella hehe..........


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 14:36:20 / hofi

Varð að stela þessu

Ég bara varð að stela þessu af síðunni hans Haffa

Stjörnumerkin eftir að kynlífi lýkur....

Hrútur: "Ok , gerum það aftur!?"
Naut: "Ég er svangur / svöng--- pöntum pizzu"
Tvíburi: "Veistu hvar fjarstýringin er?"
Krabbi: "Hvenær giftum við okkur??"
Ljón: "Var ég ekki frábær??"
Meyja: "Ég verð að þvo rúmfötin?"
Vog: "Mér fannst þetta gott ef þér fannst það líka"
Sporðdreki: "Ég ætti kannski að tengjast þér?"

Bogamaður: Ekki hringja í mig-ég hringi í þig.                                                                                                                                                                                                                  Steingeit: "Áttu nafnspjald?"
Vatnsberi: "Gerum það núna í engum fötum!"
Fiskur: "Hvað sagðist þú annars heita?"

Ég er bogamaður hehe en mundi ekki segja að ég væri svona köld hehe.......


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 14:36:49 / hofi

já há

Adda biður um nýtt blogg. Það er svo sem ekkert gríðarlega mikið að frétta. Maður er bara að sofa, sinna barninu og vinna................nei nei og svo auðvitað er maður að lifa svo skemmtilegu lífi......alltaf gaman að vera til. Ég er að fara til útlanda í næstu viku þannig sorry Sylvía mín ég kemst ekki að djammið með þér þótt mig langi rosa.

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 23:25:31 / hofi

Alltaf gaman í skóla

Já ég fór í skólann í dag.....mikið var það gaman fyrir utan það hvað ég er búin að vera veik í dag. Samt skrítið að hafa hana Svövu mína ekki með mér og sakna ég hennar. Fullt af nýju fólki í skólanum og ætlaði ég varla að komast heim í hádeginu því ég hitti svo marga sem ég var að tala við.......bara gaman af þessu og hlakka bara smá til að fara lesa meira um aðferðafræði.....

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 16:01:51 / hofi

Flottasti dagur ársins í dag

Já í mínum huga er þetta flottasti dagurinn..............dóttir mín er 8 ára í dag þessi dúlla:lol: við héldum afmælið í gær og  heppnaðist allt mjög vel þótt mamman ég var í smá stressi þar sem ég var líka að fara gæsa hana Jónu vinkonu. Við mæðgur ætlum svo að fara á tónleika og flugeldasýningu í kvöld. Nú er sko gott að eiga heima svona rétt hjá bænum ....við getum þess vegnað hlustað á tónleikana bara heima................

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 18:13:45 / hofi

Má maður ekki vera í pásu

Ég sem ætlaði að taka pásu með að blogga í allt sumar en nei nei kæru vinir ég skal blogga aðeins. Ég var að klára sumarfríið mitt og fríið var alveg æði. Ég var í 3 vikur og svaf heim hjá mér 4 nætur sem sagt mikið á ferðinni. Svo endaði fríið með því að ég keyrði dóttir minni og daddy cool upp á flugvöll og þau ætla að vera á spáni í 2 vikur, heldur betur stuð. Þannig að ég er ein heima í tvær vikur og er er að segja það að ég tel niður daganna:lol: verður sko æðislegt að fá dúlluna heim aftur. Fyndið maður er einn heima og það er brjálað að gera hjá mér.........matarboð, saumó, bíó og fl. :lol:

over and out


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 02:41:00 / hofi

Brúðkaup

Í dag fór ég í brúðkaup eins og hálf þjóðin gerði líka. Fanný vinkona og Unnar Steinn voru að gifta sig og var þetta frábært brúðkaup í alla staði. Athöfnin fór fram í Skálholti og var hún æði, í lokin á henni þegar allir gestir voru búnir að standa upp og brúðhjónin áttu að ganga út þá opnuðust kirkjuhurðirnar og inn gékk Jónsi og byrjaði að synda rosalega fallegt lag. Þetta var svo æðislegt að ég fór næstum því að gráta (já já ég veit væmið en í brúðkaupum má allt vera væmið). Veislan var á Geysi og allt var æðislegt. Við stelpurnar settum smá myndband saman fyrir þau og sýnum og plús það að tvær af okkur héldu ræðu.

Svo núna hefst undirbúningur fyrir næstu gæsaveislu fyrir hana Jónu þar sem hún er að gifta sig í ágúst honum Unnari frænda mínu :D

En um annað, þá er systir mín flutt til Ísland og það er bara rosa flott og gott að fá þau heim. Ég er byrjuð í sumarfríi og ætla að reyna að ferðast eitthvað hér á landi með dóttir minni, henni langar mest að fara til Akureyrar (hún man ekki eftir því þegar við fórum síðast) þannig að ég læt kannski verða af því að fara þangað.

Svo eru aðrar fréttir.............eftir 8 ára samveru hef ég sagt skilið við Honduna mína hehe ég verð nú að segja að þessi bíll hefur reynst mér mjög vel og vona ég að nýi eigandinn verði góður við hana. Ég keypti mér bíl á föstudaginn en fæ hann ekki fyrr en á mánudaginn. Hann er voða sætur bara en með einhverja ljóta toppgreind svona eins og til þess að festa tengdamömmu á..................ég á ekki tengdó þannig að ég ætla að losa mig við þessa grind bara strax á mánudaginn.

over and out


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.07.2007 22:13:03 / hofi

Góðir vinir

Góðir vinir eru dýrmætir :lol: já ég og Una fórum í Skorradalinn um helgina og það verður að segjast að við erum góðir vinir. Góðir vinir eru þeir sem geta verið saman og liðið vel saman og plús það að þurfa ekkert endilega að tala saman þótt þeir eru saman (vá bla bla bla Hófí hér) en það sem ég er að segja að mér og Unu leið svo vel upp í búsatð að við töluðum varla saman. Við komum á laugardegi og byrjuðum að lesa nokkrar vikur (þannig að við töluðum varla saman þá) síðan eldaði ég og við borðuðum. Á meðan við borðuðum horfðum við á tv (ekki talað mikið þá) já og eftir mat fór ég að púsla og Una horfði á tv (mjög lítið talað saman þá). Hún sofnaði í sófanum og ég púslaði til hálf 4 um nóttina. Vöknuðum og fórum í sólbað. Við töluðum mest saman í bílnum á leiðinni heim. Þetta myndi ég kalla góða vini:lol: Hey Una mín ég get varla beðið eftir næstu ferð hjá okkur......................

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 21:21:02 / hofi

Leikskólakennarinn

Kæru vinir

Ég hef ekkert verið að skrifa hér inná síðan í maí en ætla nú að setja nokkrar línur. Eins og þið vitið þá fór ég í útskriftarferð til Barcelona í byrjun júní. Ferðin var æðisleg og varð ég alveg heilluð af borginni. Þessi borg er svona ein með öllu, það er að segja að það er hægt að skoða og sjá svo margt, nú auðvitað versla (þótt ég hefði nú viljað að barna HM væri betri) og svo má ekki gleyma ströndinni og þangað lét ég mig ekki vanta. Við leigðum okkur íbúðir svo voru svo á frábærum stað, gátum gengið í bæinn og á ströndina. Fyrstu dagarnir fóru í það að skoða en síðustu fóru meira í ströndina. Við gellurnar mættum á ströndina til að slappa af og sóla okkur, byrjuðum á að fá okkur bekki, settum olíuna á og lögðumst. Ég man ég hugsaði um leið og ég lagðist...ummm hvað þetta er gott að slappa svona af en nei nei þá byrjuðu lætin það var varla friður fyrir einhverjum 5 gæjum sem gengum um og kölluðu kóka kóla, fanta, bear og fl. Það var bara fyndið :lol: Sem sagt bara frábær ferð. Já svo útskrifaðist ég síðasta laugardag og var það frábær dagur út í eitt. Ég var ekkert smá ánægð með daginn og gjafirnar sem ég fékk bara takk kærlega fyrir mig.

Núna er bara vinna framundan og svo sumarfrí í júlí.

Kær kveðja til DK vini mína


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 22:22:08 / hofi

Jæja blogga núna

Já það er eiginlega kominn tími til blogga hjá kellunni.........ég fór í Blúnduferðina um helgina og það var frábært. Alltaf gaman að hanga með nokkrum gellum. Það voru heldur betur skemmtilegar umræður í heita pottinum það er að segja háreyðingar, kynlíf, brjóst og fl. Ég verð að segja að það er alveg nauðsynlegt fyrir allar stelpur að koma svona saman annað slagið og ræði þessi mál.....alltaf gaman að fræðast meira.

Hey mér var boðið á tónleika í gær :lol::lol: á Deep P: bara gaman.....

Jæja núna er bara örfáir dagar í Barce og spennan er að magnast....

over and out

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 21:26:00 / hofi

Skólinn búin

Skólinn búinn og verð ég að segja að mér finnst það smá leiðinlegt. Leiðinlegt að hitta ekki alla á hverjum degi. En við enduðum þetta á frábæran hátt, kynningu á verkefnum okkar sem tókst svo vel og komu fullt af fólki. En svo er bara að byrja að vinna á morgun.

» 7 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 19:39:20 / hofi

útlit

Ég er búin að reyna að vera breyta um útlit hér en það vara virkar ekki. Þetta bleika er frekar ég bara. Kokteilboðið heppnaðist rosalega vel og djammið á eftir því líka. Þetta er bara búin að vera æðisleg helgi. Ég fékk skemmtilega gesti á laugardagskvöldinu og svo í dag erum við Ólöf Björg búnar að vera í smá mömmó með stelpuna hennar Sigrúnar. Sigrún og litla komu til okkar og við löbbðum niður Laugarveginn og eitthvað. Ný vika að byrja og endalaus vinna. Sumarið er alveg að koma og það er frábært. Ég væri samt alveg til í að fara til Öddu og Evu í sumar...............................

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 11:43:00 / hofi

Djamm eða hvað

Já það er óhætt að segja að djamm-mánuðir mínir eru sep, des og maí.....ég get djammað allar helgar í maí ef ég vil.

Fyrstu helgina er kokteilboð upp í skóla fyrir útskriftarnema og ætlar bekkurinn minn að djamma eftir það.Ég get nú ekki látið mig vanta þar. Planið er bara held ég að vera rúllandi í borginni alla nóttina:lol: Svo er reyndar örugglega Húsó-hittingur sama kvöldið.

Önnur helgin í maí og ætlar saumó nr 2 að djamma í Keflavík. Ennþá spurning hvort ég komi það fer allt eftir því hvað við erum búnar með mikið af þróunarverkefninu því það er skil á því vikuna eftir.

Þriðja helgin í maí er búið að bjóða mér í grill og djamm hjá Jónu vinkonu og Unnari frændi og líka þá er bróðir minn að útskrifast. Ég býst nú við því að gera eitthvað þarna þar sem ég verð búin í skólanum.

Fjórða helgin í maí er blúnduferð (bústaðaferð) hjá saumó 1 og reyndar líka mojitho-hittingur. Planið var hjá mér að fara upp í bústað á laugardeginum. Ég ætlaði að reyna að vera eitthvað með dóttir minni þar sem ég fer erlendis helgina eftir.

En allt þetta djamm á eftir að koma í ljós fer líka eftir dóttir minni því hún gengur fyrir. Hún verður nú að fá að hafa mömmu sína eitthvað því mamman er búin að vera smá í burtu að læra mikið. Hún verður örugglega glöð með það að skólinn er búin hjá mér og reyndar líka hjá pabba hennar......við eru bæði að útskrifast núna...


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 15:32:29 / hofi

Rok í Reykjavík

Ég hélt að það væri bara rok í Keflavík.....en nei það er sko rok í Reykjavík líka takk fyrir

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13